Atvinnutæki

Kaup­leiga er kjörin leið til að fjár­magna vélar og tæki til atvinnu­reksturs

Þú velur vél eða tæki fyrir þinn rekstur, Lykill kaupir tækið og leigir þér gegn greiðslum í takt við tekjustreymi þíns fyrirtækis.

Þú velur tækið, við leigjum þér það
Þú velur tækið, við leigjum þér það

Þú velur það tæki sem hentar í þinn rekstur, Lykill staðgreiðir kaupverð þess tækis til seljanda og leigir þér út samningstímann.

Sveigjanlegur samningstími
Sveigjanlegur samningstími

Samningstími er yfirleitt þrjú til sjö ár en lengd hans hverju sinni er háð aldri og eðli leigumuna.

Greiðslur sem henta þér
Greiðslur sem henta þér

Þú getur stillt greiðslum upp í samræmi við tekjustreymi í þínum rekstri. Virðisaukaskattur greiðist út við upphaf samnings.

Auðveld fjármögnun

Kaupleiga opnar leiðir fyrir fjármögnun ýmissa tegunda véla og tækja. Lykill býður upp á allt að 80% fjármögnun af kaupverði án virðisaukaskatts. Fyrirtæki eða rekstraraðili er skráður umráðamaður á gildistíma kaupleigusamnings og Lykill er skráður eigandi. Við lok leigutíma greiðir þú lokagjald og verður skráður eigandi sé um skráningarskylt tæki að ræða.

Þægilegar greiðslur

Greiðslunum má stilla upp þannig að þær séu hærri á þeim árstíma sem tekjur fyrirtækisins eru háar en lægri þegar tekjur dragast saman.

Bókhaldslegt hagræði

Þú getur nýtt þér afskriftir af tækinu og því er til dæmis hentugt að nýta sér kaupleiguformið í lok árs og ná þannig fram heils árs afskrift. Þú færð sölureikning fyrir tækinu í upphafi samnings og eignfærir því tækið í bókhaldi hjá þér. Einungis er hægt að gjaldfæra vaxtahluta hverrar leigugreiðslu. Þú greiðir allan virðisaukaskatt af kaupverði tækis við kaup og færð hann allan endurgreiddan við næstu skil ef um er að ræða skattskylda notkun.

Kaupleiga opnar fyrir fjármögnun tækja og eykur þar með vöxt þíns fyrirtækis

Fjármögnunar--leiga

Fjármögnunar­leiga

Fjármögnunarleiga hentar til fjármögnunar á bílum, vélum og tækjum til atvinnurekstrar og leggst virðisaukaskattur ofan á leigugreiðslurnar.

Bílalán

Bílalán

Bílalán eru einföld og þægileg leið fyrir fyrirtæki til að fjármagna bíla eða önnur skráningarskyld ökutæki.

Rekstrarleiga

Rekstrarleiga

Rekstrarleiga hentar fyrirtækjum og rekstraraðilum vel við fjármögnun atvinnubíla eða atvinnutækja. Rekstrarleigusamningar geta ýmist innifalið alla helstu þjónustuþætti eða verið án þeirra.