Aftur heim
6. feb, 2025
Vaxtalækkun 6. febrúar

Frá og með deginum í dag, 6. febrúar 2025, munu óverðtryggðir breytilegir vextir nýrra Lykillána og Lykilsamninga lækka um 0,50% stig. Er þessi ákvörðun tekin í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands frá því í gær.

Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og Lykilsamningum sem taka gildi í dag verða því eftirfarandi:

  • Fjármögnunarhlutfall 50% og lægra af kaupverði - 10,70%
  • Fjármögnunarhlutfall >50% til 70% af kaupverði - 11,45%
  • Fjármögnunarhlutfall >70% til 80% af kaupverði - 11,70%
  • Fjármögnunarhlutfall >80% til 90% af kaupverði - 13,15%

Við viljum minna á að þeir sem eru að kaupa 100% rafmagnsbíl fá 50% afslátt af lántökugjöldum og 0,60% stiga afslátt af vöxtum frá gildandi gjaldskrá. Þeir sem kaupa tengiltvinnbíla sem menga 50g CO2 eða minna fá einnig afslátt af lántökugjöldum.