Aftur heim
3. okt, 2024
Vaxtalækkun 3. október

Frá og með deginum í dag, 3. október 2024, munu óverðtryggðir breytilegir vextir nýrra Lykillána og Lykilsamninga lækka. Er þessi ákvörðun tekin í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands frá því í gær.

Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og Lykilsamningum sem taka gildi í dag verða því eftirfarandi:

  • Fjármögnunarhlutfall 50% og lægra af kaupverði - 11,70%
  • Fjármögnunarhlutfall >50% til 70% af kaupverði - 12,45%
  • Fjármögnunarhlutfall >70% til 80% af kaupverði - 12,70%
  • Fjármögnunarhlutfall >80% til 90% af kaupverði - 14,15%

Við viljum minna á að þeir sem eru að kaupa 100% rafmagnsbíl fá 50% afslátt af lántökugjöldum og 0,60% stiga afslátt af vöxtum frá gildandi gjaldskrá. Þeir sem kaupa tengiltvinnbíla sem menga 50g CO2 eða minna fá einnig 50% afslátt af lántökugjöldum.