Lykill býður upp á bæði skjóta og góða þjónustu og hagstæð kjör á bílalánum. Það er lykillinn að nýja bílnum þínum.
Mánaðargreiðsla
Vextir
Höfuðstóll láns
Fjármögnunarhlutfall
Hjá Lykli getur þú fengið bílalán fyrir allt að 90% af kaupverði bílsins og lánstíminn getur verið allt að sjö ár.
Þú getur greitt inn á lánið hvenær sem er og greiðir ekkert uppgreiðslugjald. Þannig getur þú auðveldlega lækkað vaxtakostnað.
Lykill býður ekki bara fjármögnun á bílum heldur líka öðrum ökutækjum á borð við mótorhjól, fjórhjól, vélsleða, húsbíla og hjólhýsi.
Lánið er óverðtryggt með breytilegum vöxtum. Það er með jöfnum greiðslum sem þýðir að greiðslubyrðin helst óbreytt ef vextir breytast ekki.
Þótt Lykill tilheyri sömu samsteypu og TM eru engar kvaðir varðandi tryggingar á bílalánum hjá Lykli. Þú ræður alfarið hvar þú tryggir nýja bílinn þinn.
Þú þarft að gangast undir greiðslumat ef lánsfjárhæðin að viðbættum lántökukostnaði er hærri en 2.918.112 eða ef hún er hærri en 5.836.224 fyrir hjón eða par í sambúð. Í öllum tilfellum þarf lánshæfismat að eiga sér stað.
Aldur á notuðum bíl og lánstími getur verið að hámarki níu ár samanlagt í tilviki 90% lána og að hámarki tólf ár samanlagt í tilviki 80% lána.
Lykill getur ekki aðeins aðstoðað þig við að fjármagna bílakaup heldur einnig kaup á öðrum skráningarskyldum ökutækjum. Lánstími getur verið allt að sjö ár fyrir húsbíla, hjólhýsi og tjaldvagna (samanlagður aldur og lánstími að hámarki tólf ár) en 5 ár fyrir fjórhjól, mótorhjól og vélsleða (samanlagður aldur og lánstími að hámarki tíu ár). Hjá Lykli getur þú fengið lán fyrir allt að 75% af kaupverði á eftirfarandi tækjum:
Þú finnur rétta bílinn hjá bílasala.
Bílasalinn sendir inn lánsumsókn fyrir þig.
Lykill fer yfir lánsumsóknina og útbýr samning.
Þú undirritar samninginn og eignast bílinn!
Hjá TM getur þú keypt allar bílatryggingar á fljótlegan og auðveldan hátt á netinu.
Á mínum síðum sérðu yfirlit yfir öll þín mál og getur fylgst nákvæmlega með láninu þínu.