Viltu greiða inn á lánið þitt?
Þú getur greitt inn á lán eða greitt það upp að fullu á Mínum síðum.
Mínar síðurLykill býður góð kjör og skjóta þjónustu hvort sem þú ert á höttunum eftir bílaláni eða fyrirtækjaþjónustu.
Lykill býður upp á bæði skjóta og góða þjónustu og hagstæð kjör á bílalánum. Það er lykillinn að nýja bílnum þínum.
Lykill fjármagnar ýmsar tegundir atvinnutækja á borð við vinnuvélar, atvinnubifreiðar og fólksbifreiðar fyrir fyrirtæki. Þú getur stillt greiðslum í samræmi við tekjustreymi í þínum rekstri og almennt er tækið eina tryggingin fyrir fjármögnuninni.
Þú finnur rétta bílinn hjá bílasala.
Bílasalinn sendir inn lánsumsókn fyrir þig.
Lykill fer yfir lánsumsóknina og útbýr samning.
Þú undirritar samninginn og eignast bílinn!
Lykill býður upp á græn lán sem eru hagstæðari fyrir þau sem hyggjast kaupa sér bíl sem gengur fyrir endurnýjanlegri orku. Það gildir annars vegar um rafmagns- og vetnisbíla sem ganga fyrir 100% endurnýjanlegri orku og hins vegar um tengiltvinnbíla með mengunarstuðul undir 50 g CO2/km
Lykill getur ekki aðeins aðstoðað þig við að fjármagna bílakaup heldur einnig kaup á öðrum skráningarskyldum ökutækjum. Lánshlutfall getur verið allt að 80% og lánstími allt að sjö ár fyrir húsbíla, hjólhýsi, og tjaldvagna (samanlagður aldur og lánstími að hámarki tólf ár).
Lánshlutfall getur verið allt að 75% og lánstími allt að 5 ár fyrir fjórhjól, mótorhjól og vélsleða (samanlagður aldur og lánstími að hámarki tíu ár).
22. maí, 2025
Frá og með deginum í dag, 22. maí 2025, munu óverðtryggðir breytilegir vextir nýrra Lykillána og Lykilsamninga lækka um 0,25% stig. Er þessi ákvörðun tekin í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands frá því í gær.
20. maí, 2025
Við vorum að frumsýna nýjustu auglýsingu sína, þar sem fjallað er á léttan en áleitan hátt um það samband sem margir eiga við bílinn sinn – samband sem....